Ég fór á Þjóðhátíð....

Pottþétt aftur á næsta ári...

Yes we like....
-Heidi almighty


Jææææja er ekki komin tími á blogg...eða er þetta alveg dautt
æj mér er nokk...fínt að blogga meðan maður lætur aðeins líða úr maganum á sér...var nefnilega í afmæli hjá Njólu frænku...skvízan orðin 41 til lukku með það.
allavegana...hmm veit ekkert hvað ég að að segja ykkur. Gerist voðalega lítið í lífi mínu þessa dagana, nema bara vinna,æfa og éta...en það er ágætt þá situr maður ekki á rassgatinu að gera ekki neitt...reyndar þá sit ég alveg á rassagatinu frá 8-16 alla virka daga....kom mér nebbla í vinnu uppá landspítala, í bókhaldinu. Mín að borga reikninga og svona...ber samt enga ábyrgð á því að birgjarnir séu ekki að fá borgað...ekki mín deild
hvernig er annars sumarið búið að fara með ykkur? já hélt það líka.... sumarið byrjaði nú hjá mér og fleirum á Spáni í nokkuð skemmtilegri útskriftarferð, gerðist nú margt og mikið í henni...förum ekkert nánar útí það...bara snilldarferð í alla staði. Og svo er maður bara búin að vera að vinna síðan....get nú ekki sagt að ég sé búin að vera dugleg í djúserínu þetta sumarið....skil nú ekkert í því. En er nú búin að gera margt og mikið...búin að kíkja vestur, sem var bara gaman, lenti í færeysku 70. afmæli hjá Finn sem er giftur frænku. Það var aðeins of skemmtilegt...get ekki beðið eftir að ég verði 70 ára...það verður nú eitthvað skrautlegt.
svooo er ég búin að fara nokkru sinnum austur á klaustur sem er alltaf jafn skemmtilegt og svo fór ég ásamt fríðu föruneyti á humarhátið á höfn...hefði nú betur sleppt því vegna skyndilegs aukakostnaðar
en það var snilld og bessi hressi og mútta hans voru svo indæl að hýsa okkur...takk fyrir það
svo þegar flest allir ML-ingar skunduðu á BUBBU sem ég frétti að hefði verið mega stuð...skellti ég mér bara í eina litla hestaferð og gvuð minn góður hvað ég fékk miklar harðsperru eftir þá ferð....sjííííí...en það voru góðar harðsperrur
og þá er það bara ÞJÓÐHÁTIÐ næstu helgi....shæse hvað það á eftir að vera gaman...ég gjörsamlega iða í skinninu eftir að komast til eyja, gaman að hitta alla ættingja og svona....en get nú ekki sagt að ég bíði spennti eftir sjóferðinni með hinum margfræga Herjólfi...það má segja að við séum ekki miklir félagar
en það reddast![]()

en heyrðu ég skal nú segja ykkur fréttir...þið sem þekkið mig smá...vitið nú að ég er ekki sú liðugasta...en það er nú breyttir tímar...haldið að ég hafi bara ekki verið að ljúka 4 vikna námskeiði í viðnámsteigjum, sem er byggt á yoga....ótrúlega gaman, vorum að styrkja líffærin og persónuleikan ásamt því að styrkja okkur og liðka...og virkaði þetta svona helvíti vel...mæli með þessu
svo þegar það var búið ákvað ég að skella mér í dans...þannig að ég er byrjuð að æfa hip hop...sem er bara gargandi snilld...aðeins of skemmtilegir tímar....
og svo er maður líka eitthvað að sparka í bolta með ÍR..brjálað að gera sko![]()
eeeen svo fer sumarið nú bara alveg að vera búið...bara ca mánuður eftir
alltof fljótt að líða...en haustið er nú ekki leiðinlegt...þá er afréttur og réttir og öll réttarböllinn...ætli maður eigi ekki eftir að þræða þau eins og maður getur
og svo er það bara háskólinn...babarammm
trúi ekki að maður sé orðin svona gamall....
er ekki ennþá alveg búin að átta mig á þessu...en ég ætla að prófa félagsráðgjöfina...hún hljómar allavegana mjög spennandi...![]()
en heyriði ég verð að segja þetta gott í bili...en ég reikna með að sjá ykkur flest öll fersk á ÞJÓÐHÁTIÐ
-Heiðrún

haha hversu fyndin er þessi dúlla..? ;) bara sætur
Gleðilegt ár og takk fyrir allt það gamla og góða ;) eru þið ekki búin að hafa það gott í jólafríinu?
En hvað segiði 2008, djííí tíminn alveg flýgur áfram, kannsi aðeins of hratt fyrir minn smekk... við að fara að útskrifast í vor og læti....finnst eins og það hafi verið í fyrradag þegar við komum á Vatnið skítugir busar 2004, þá var maður bara eitthvað ,,vóóóh djöfull er langt þanngað til við útskrifumst maður...ekki fyrr en 2008" ... en vollah 2008 er komið og við að fara að útskrifast í vor....

Bessi, Ási og Garðar í 1.bekk
en þau eru búin að vera skemmtieg þessi ár á Laugarvatni
ýmislegt búið að bralla saman![]()

Geiri, Sævi töff og Bessi
Strákarnir með ógleymanlegt atriði ;)
svo erum við búin að taka nokkur góð djömm á þetta...
útlaginn klikkar ekki...

...og hvað þá Pakkarinn sálugi R.I.P
öll böllin sem við höfum farið á saman...
og svo má ekki gleyma Rusty kallinum....
En við erum auðvitað klikkað dugleg og alltaf að gera eitthvað sniðugt...
Erum ýkt dugleg...
nýtum alla tíma til hins ýtrasta, sérstaklega þegar kemur að náminu...
og erum dugleg að mæta í skólann...það verður ekki af okkur skafið!
Erum best í íþróttum....
Auk þess að vera öll fjallmyndarleg!
Svo elskum við hvert annað öll svo mikið...
En takk fyrir öll árin krakkar
og gerum síðust önninna okkar í ML GEÐVEIKA![]()
![]()
Hlakka til að sjá ykkur öll á Sunnudaginn ![]()
-Heiðrún sem getur ekki sofnað


svo þú getir hlustað á það aftur og aftur ....

Við til Spánar héldum
Mikil gleði og gaman
Mikið drukkið og dansað
Þar til nóttin var á enda
Beið okkar þá beddi góður
Við þó móður enga höfðum
Og enga til að gæta okkar þarna
En það var gott, því nóttin er löng
Þó lífið sé stutt.
Héldum á fætur vel hressar,
Svangar og sælar fundum eitthvað gott í svanginn
Lögðumst út að tana,
En ekki að mala, því við sofnuðum vært
Eftir góða ferð við heim á leið héldum
Vel tanaðar og sætar
Og ansi kátar eftir góða ferð
Þetta var sælan ein og án efa verður þetta endurtekið.
- Heidi Almighty 









Jæja.. nú erum við með nýja merkis frétt!!! það er kominn nýr meðlimur á Specialz, það er hún Hanna Margrét fyrverandi bekkjarsystir okkar sem er að verða mamma, er sett í lok nóv
og viljum við bjóða hana velkomna hingað ![]()
![]()

Hanna krúttlega:)
en já það er margt búið að gerast síðan það var bloggað síðasta.. við allar á fullu í skólanum, síðasta árið og maður verður að reyna að standa sig vel svona einu sinni ef maður ætlar að fara að gera eitthvað gáfulegt í lífinu! Svo erum við allar að æfa dans fyrir Blítt og létt, verðum sko of heitar...

svo eru Sólveig og Gróa að fara að syngja líka, þannig að þetta verður líklega mjög skemmtilegt kvöld.. En Blítt og létt verður einmitt 15. nóvember, endilega allir að mæta! Svo verður náttfataball 16. nóvember.. það verður ógeðslega gaman, en við viljum ekki fá neina brjálæðinga... !
En núna um síðustu helgi komu um 60 krakkar frá Laugum í heimsókn til okkar, og það var haldið íþróttamót, þar sem Laugarvatn rústaði að sjálfsögðu..
Svo var skemmtikvöld, sem var mjög skemmtilegt og eftir það voru allir bara að kynnast og svoleiðis. Og ég hef eftir áreiðanlegum heimildamanni mínum að Heiðrún hafi haft nokkra Laugastráka inni í herberginu sínu til klukkan 5.00 á laugardagsnóttina, aldrei að vita hvað gerðist þar..
En þetta var bara ágætis helgi og gaman að fá annan skóla í heimsókn..
Svo erum við á fullu að safna fyrir útskriftarferðinni, og það gengur bara ágætlega, verður gaman..

Ætli við verðum liggjandi þarna í sumar?? ![]()
góðan daginn![]()
gasalega er langt síðan eitthvað var gert hér á þessari frábæru síðu okkar. núna er margt búið að gerast og margt framundan!
Seinasta Miðvikudag héldum við stelpukvöld heima hjá mér fyrir 3 og 4. bekkjar stelpur! við keyptum í bollu og keyptum tortillas..fórum í pottin, drukkum, sungum, spjölluðum, drykkjuleik og stelputal! einnig fengum við gest sem hélt fyrir okkur mjög fróðlega og skemmtilega kynningu..sá gestur kom frá rómantík.is! við vorum allar orðnar vel hressar og margar af okkur misstu sig kanski aðeins í gleðinni en það er bara
betra
svo koma strákarnir og Stella að sækja okkur svo við gætum nu mætt hressar i skolann daginn eftir!
þetta gekk allt vel og skemmtu flestir sér mjög vel! og vil ég þakka ykkur stelpur fyrir gott kvöld og vona að það verði fleiri í framtíðinni ![]()
svo í gær Fimmtudaginn 18. október átti ein af okkur afmæli og það mun vera hún Ragnheiður Bjarnadóttir heitasta gellan á vatninu! við fengum lykla hjá Pálma, tróðum allri fjarvist inná herbergi hjá henni, földum okkur þar með kökur, pakka, nakinn mann og kertaljós! hef sjaldan séð eitthvern svona hissa og bregða mikið..hehe bara fyndið
hún var alveg þvílikt glöð með gleðskapinn...eftir það var svo skundað í hann rusty gamla og tekið nokkur lög og smá gítarspil og spjall! en maður var nu half þreyttur eftir miðvikudaginn þannig við tókum því bara rólega! 
sætasta afmælisbarnið ![]()
já svo nuna framundan er helgi! ætli maður taki þvi ekki rólega í dag og fari svo kanski í teiti hjá einni af okkur gellunum á morgun
en já þessi könnun okkar er orðin úrelt og niðurstaðan úr henni er að hún Berglind nokkur Pálmadóttir skólaráðsfulltrúi okkar er 4.b tíkin! iss hun er nu alveg svakaleg..haaa! ![]()
en þarna hafið það gott og ef þið vitið um eitthverja áhugaverða vinnu megiði endilega láta mig vita!!??
Arna
